
Lengri námslínur
Vinnsla og greining gagna (e. Data Analysis)
Á tímum gagnagnóttar (Big Data) veitir þekking á nýtingu gagna samkeppnisforskot.
Staðnám
Skráningu lokið / Námskeið uppselt
Vinnsla og greining gagna (e. Data Analysis)
Gagnalæsi - 27. september 2022 kl. 09:00 - 15:00
Gagnalæsi - 4. október 2022 kl. 09:00 - 15:00
Pivot töflur og gröf - 11. október 2022 kl. 09:00 - 15:00
Vöruhús gagna - 18. október 2022 kl. 09:00 - 15:00
Viðskiptagreindarkerfi - 25. október 2022 kl. 09:00 - 15:00
Power BI - 1. nóvember 2022 kl. 09:00 - 15:00
Power BI - 8. nóvember 2022 kl. 09:00 - 15:00
Power BI - 15. nóvember 2022 kl. 09:00 - 15:00
Að breyta gögnum í verðmætar upplýsingar - 22. nóvember 2022 kl. 09:00 - 15:00
Að breyta gögnum í verðmætar upplýsingar - 29. nóvember 2022 kl. 09:00 - 15:00
SQL Gagnagrunnar - 17. janúar 2023 kl. 09:00 - 15:00
SQL Gagnagrunnar - 24. janúar 2023 kl. 09:00 - 15:00
SQL Gagnagrunnar - 31. janúar 2023 kl. 09:00 - 15:00
SQL Gagnagrunnar - 7. febrúar 2023 kl. 09:00 - 15:00
R - tölfræðiúrvinnsla - 14. febrúar 2023 kl. 09:00 - 15:00
R - tölfræðiúrvinnsla - 21. febrúar 2023 kl. 09:00 - 15:00
R - tölfræðiúrvinnsla - 28. febrúar 2023 kl. 09:00 - 15:00
Forritun - 7. mars 2023 kl. 09:00 - 15:00
Forritun - 14. mars 2023 kl. 09:00 - 15:00
Forritun - 21. mars 2023 kl. 09:00 - 15:00
Forritun - 28. mars 2023 kl. 09:00 - 15:00
21 lotur
Stutt lýsing
Á tímum gagnagnóttar (Big Data) veitir þekking á nýtingu gagna samkeppnisforskot.
Um námskeiðið
Góður árangur í rekstri byggir í auknum mæli á greiningu gagna til stuðnings ákvörðunartöku. Með þessu yfirgripsmikla námi öðlast þátttakendur þekkingu í að nálgast gögn og vinna með þau, undirstöðuatriði forritunar og verkefnastjórnun, þeir fá þjálfun í greiningu með mismunandi verkfærum og læra aðferðir við að setja gögnin fram á skýran og aðgengilegan hátt.
Meðal þess sem kennt er:
- Helstu atriði við notkun á SQL gagnagrunni.
- Gerð spálíkana og greining félagslegra neta (e. social network analysis) með sjálfvirkri tölvugreiningu.
- Möguleikar Power BI frá Microsoft
- Algengustu aðgerðir tölfræðiúrvinnslu í R
- Helstu þættir vöruhúsa gagna
- Hvernig á að velja viðskiptagreindarkerfi
- OLAP/BI tengingar og mælaborð í Excel
- Grunnatriði forritunar í Python
Um verðmæti gagna
Í allri starfsemi verða til gögn sem hægt er að nýta. Gögnin geta hjálpað starfsfólki að sjá ný tækifæri, taka betri ákvarðanir og þróa nýja vöru og þjónustu eða bæta það sem framleitt er nú þegar. Kunnátta á helstu aðferðum við að greina gögnin, lesa úr þeim og setja þau fram, er því nauðsynleg í atvinnulífinu í dag og verður enn mikilvægari á komandi árum.
Fyrir hverja er námskeiðið
Námið hentar sérfræðingum og stjórnendum sem hafa unnið með gögn í störfum sínum og vilja þjálfa sig og bæta kunnáttuna.
Skipulagið
Um kennslu í námslínunni sjá fimm sérfræðingar sem hafa umfangsmikla þekkingu á forritun, upplýsingastjórnun, viðskiptagreind, tölfræði, líkanagerð, verkefnastjórnun og ákvörðunartöku. Kennt verður í staðarnámi.
Próf og verkefni
Nemendur þurfa ekki að þreyta próf og þeim er ekki sett fyrir heimavinna. Þau verkefni sem eru sett fyrir eru valkvæð.
Námslínan er 126 klukkustundir. Kennsla hefst í september og lýkur í mars með jólafríi á milli. Kennt er á þriðjudögum frá kl. 9:00 til 15:00.
(birt með fyrirvara um breytingar)
Haustönn 2022
Hefst 27. september og lýkur 29. nóvember.
Vorönn 2023
Hefst 17. janúar og lýkur 28. mars.
Hagnýtar upplýsingar
Nemendur fá létta morgunhressingu og hádegismat þá daga sem kennt er.
Flest stéttarfélög niðurgreiða hluta námskeiðsgjalda fyrir sína félagsmenn.
Átt þú rétt á styrk frá stéttarfélagi til að sækja nám eða námskeið?
Kannaðu málið.
Verð
Verð: 555.000 kr.
Verkefnastjóri
Björg Rún Óskardóttir
bjorgrun@ru.is
Leiðbeinendur

Jón Bjarki Gunnarsson

Grímur Sæmundsson
BI RáðgjafiGrímur hefur starfað sem ráðgjafi í viðskiptagreind undanfarin 20 ár, m.a. hjá Applicon, Umoe Consulting og Deloitte Consulting. Grímur hefur langa reynslu af kennslu og þjálfun, bæði í tengslum við innleiðingar á viðskiptagreind og sjálfstæð námskeið. Grímur er með BA í heimspeki, kerfisfræðingur frá HR og MBA.

Yngvi Björnsson
Prófessor við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík (HR) og meðstjórnandi Gervigreindarseturs HR

Yngvi Björnsson
Prófessor við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík (HR) og meðstjórnandi Gervigreindarseturs HRYngvi er með PhD gráðu í tölvunarfræði frá University of Alberta, Kanada með gervigreind sem sérsvið. Hann hefur kennt fjölda námskeiða á sviði gervigreindar og sjálfvirkrar gagnagreiningar.

Anna Helga Jónsdóttir
Dósent í tölfræði við Raunvísindadeild Háskóla ÍslandsAnna Helga lauk BS-prófi í vélaverkfræði frá HÍ vorið 2003, meistaraprófi í hagnýttri stærðfræði frá DTU haustið 2005 og doktorsprófi í tölfræði frá Háskóla Íslands 2015.
Hún hefur kennt tölfræði við DTU og HÍ síðan vorið 2006 og komið að námsefnisgerð í báðum skólum.
Sérsvið Önnu Helgu er tölfræðikennsla og þróun kennsluhugbúnaðar.

Pálmi Símonarson
Sérfræðingur í viðskiptagreindPálmi hefur starfað við gagnatengd mál, m.a. vöruhús gagna og skýjalausnir hjá Orkuveitu Reykjavíkur síðan 2013. Áður starfaði Pálmi við hugbúnaðargerð, allt frá mælitækni til samþættingarlausna til flugumferðarstjórnunarkerfa. Pálmi er með próf í rafmagnsverkfræði frá HÍ.