Lykilþættir sölu, þjónustu og væntingastjórnunar. Fjarkennsla
-
Næsta námskeið
18. febrúar 2021
kl. 13.00 - 17.00. Námskeiðið er kennt í fjarkennslu -
Staða
Skráning hafin
-
Lengd
4 klst. (1x4)
-
Verð
39.000 kr.

Verkefnastjóri
Um námskeiðið
Á námskeiðinu verður farið yfir lykilþætti starfsmanna við sölu-og þjónustu. Fræðst verður um þjónustu, væntingastjórnun og þjálfun starfsmanna í þessum þáttum.
Að námskeiði loknu er stefnt að því að þátttakendur:
- Öðlist betri þekkingu í lykilþáttum starfsmanna við sölu-og þjónustu.
- Geri sér betur grein fyrir mikilvægi samskipta og framkomu við sölu-og þjónustu.
- Geri sér betur grein fyrir hvað þjónusta er mikilvæg í nútíma samfélagi.
- Þekki hugtakið „væntingastjórnun“ betur og hvernig hún getur nýst starfsmönnum og fyrirtækjum til framdráttar.
- Þekki betur þróun á kauphegðun undanfarinna áratuga.
- Skilji mikilvægi þjálfunar í ofangreindum þáttum.
Góðir sölu- og þjónustuhættir, mikilvægi væntingastjórnunar
Nútíma samfélag hefur þróast gríðarlega hratt á undanförnum áratugum. Samhliða þessum aukna hraða, hefur hlutverk starfsmanna við sölu-og þjónustu þróast mikið. Krafa viðskiptavina varðandi þjónustu, hraða starfsmanna og snöggar úrlausnir vandamála hafa aukist einnig. Í því skyni, er áhugavert að velta fyrir sér hverjir lykilþættir starfsmanna í framlínu eru. Hvað er það sem einkennir góða sölumenn? Hver er áhersla fyrirtækja á góða þjónustu og hvernig skilar það sér til starfsmanna?
Einstaklingar í samskiptum við viðskiptavini eru beint og óbeint að starfa við væntingastjórnun í öllum sínum verkefnum. Væntingar viðskiptavina hafa þróast samhliða auknum hraða og verða sífellt mikilvægara „tól“ í fórum starfsmanna. Með hvaða hætti hefur þróun á kauphegðun undanfarinna áratuga haft áhrif á hlutverk starfsmanna? Eru starfsmenn og fyrirtæki meðvituð um þessa breyttu kröfu og fá starfsmenn nægilega þjálfun til að læra inn á mikilvægi væntingastjórnunnar?
Fyrir hverja er námskeiðið?
Námskeiðið hentar öllum þeim sem eiga (eða vilja eiga) í samskiptum við viðskiptavini með einum eða öðrum hætti. Jafnframt er námskeiðið tilvalin leið fyrir þá sem eru nýjir í slíku starfi eða hafa starfað árum saman við sölu-og þjónustu og vilja bæta sig í starfi.
Skipulag
Kennsla fer fram:
- Fimmtudaginn 18. febrúar 2021 frá kl. 13.00-17.00.
Námskeiðið er kennt í fjarkennslu í gegnum Zoom fjarfundarbúnað.
Vinsamlega athugið að dagsetningar eru birtar með fyrirvara um að lágmarksþátttaka náist á námskeiðið.
Hagnýtar upplýsingar
Flest stéttarfélög niðurgreiða hluta námskeiðsgjalda fyrir sína félagsmenn. Opni háskólinn hvetur þig til að kynna þér möguleikana.