Hagnýt opinber innkaup
Námskeið sem fjallar um innkaup ríkisstofnana og sveitarfélaga á vöru og þjónustu með áherslu á þarfir og kröfur innkaupaaðila.
-
Næsta námskeið
5. mars 2019
kl. 9.00 - 12.00 -
Staða
Skráning hafin
-
Lengd
6 klst. (2x3)
-
Verð
48.000 kr.

Verkefnastjóri
Um námskeiðið
Á þessu námskeiði er umfjöllunarefnið bæði hagnýtt og fræðilegt og tekur til innkaupa á vöru og þjónustu. Áhersla er lögð á þarfir og kröfur innkaupaaðila.
Athugið að ekki er fjallað um innkaup á framkvæmdum og mannvirkjagerð. Umfjöllun um lög um opinber innkaup (120/2016) falla utan námskeiðsins nema til þess að rökstyðja og ramma inn umfjöllunarefni- og nýta regluverkið til fulls.
Efnisþættir:
- Grundvallarreglur og hugmyndafræði opinberra innkaupa
- Munur á innkaupum einkaaðila og opinberra
- Undirbúningur innkaupa, markmið og skipulag
- Hagnýt dæmi um innkaupaferla
- Samskipti kaupenda og seljenda við undirbúning og framkvæmd opinberra innkaupa
- Stjórnun samnings í kjölfar innkaupa
- Matsatferðir og matslíkön – það sem (ekki) má
- Hvernig kaupum við inn?
- Árangursrík útboð
Í lok námskeiðs er stefnt að því að þátttakendur:
- Hafi staðgóða þekkingu yfirlit á grundvallaratriðum opinberra innkaupa
- Geti greint, skipulagt og stjórnað stærri innkaupaverkefnum
- Þekki svigrúm og getu regluverksins til þess að styðja við hagnýt innkaup
- Hafi innsýn í samskipti við hagsmunaaðila í innkaupaferlinu
Fyrir hverja er námskeiðið?
Námskeiðið er sniðið að starfsfólki sem ákveður, skipuleggur og hefur yfirumsjón með jafnt einföldum sem flóknum innkaupaverkefnum hjá sveitarfélögum og ríkisstofnunum /-fyrirtækjum, til skamms og til langs tíma. Námskeiðið höfðar einkum til innkaupafólks og stjórnenda sem hafa áhuga á hagstæðum innkaupum.
Skipulag
Námskeiðið er kennt eftirfarandi daga:
- Þriðjudaginn 5. mars 2019 kl. 9-12.
- Fimmtudaginn 7. mars 2019 kl. 9-12.
Vinsamlega athugið að dagsetningar eru birtar með fyrirvara um að lágmarksþátttaka náist á námskeiðið.
Hagnýtar upplýsingar
Flest stéttarfélög niðurgreiða hluta námskeiðsgjalda fyrir sína félagsmenn.