Home/Skýr samskipti & aukin færni í starfi
Stjórnun og leiðtogafærni Persónuleg þróun

Styttri námskeið

Skýr samskipti & aukin færni í starfi

Seigla, steita, meðvirkni og samskipti

Skýr og skilvirk samskipti og tengsl auka færni í lífi og starfi. Að skilja streitu og auka seiglu bætir frammistöðu í starfi og minnkar líkur á kulnun.

Staðnám

Námskeið hefst
13. apríl 2023 - kl. 09:00
Verð
73.000 kr.
Staða
Skráning hafin

Stutt lýsing

Seigla, steita, meðvirkni og samskipti

Skýr og skilvirk samskipti og tengsl auka færni í lífi og starfi. Að skilja streitu og auka seiglu bætir frammistöðu í starfi og minnkar líkur á kulnun.

Um námskeiðið

Þetta er námskeið sem færir þekkingu og úrræði sem nýtast vel í starfi. Ein grunnforsenda þess að vaxa í starfi eru heilbrigð streita og samskipti, sem hafa að auki áhrif á starfsánægju, menningu og starfsanda. Að bera kennsl á þætti í vinnuumhverfi sem valda neikvæðri streitu, óheilbrigðum samskiptum og samskiptaleiðum (okkar eigin og annarra) er einkar mikilvægt þegar að því kemur að skapa gott starfsumhverfi með möguleikum á að auka færni og þróast í starfi.

Streita og samskipti fólks á vinnustöðum eru lykilþættir þess að minnka álagstengd veikindi og starfsmannaveltu, koma í veg fyrir kulnun og auka ánægju og vellíðan starfsfólks. Þannig nýtast hæfileikar þess og færni í starfi og starfsgeta eflist. Góð samskipti minnka álag og streitu.

Á námskeiðinu verða nýjar kenningar um álags-, streitu- og áfallafræðum kynntar til sögunnar. Athyglinni verður einnig beint að meðvirkni, einkennum og áhrifum hennar á samskipti, líf og líðan hvort sem er í starfi eða í einkalífi.
Farið er í úrræði og kynntar leiðir til að efla og tengja við hug og hjarta hér og nú.

Markmið þessa námskeiðs er að þátttakendur öðlist þekkingu sem stuðlar að heilbrigðum samskiptum og tengslum og aukna færni til að takast á við breytingar og áskoranir. Þessir þættir eru æ mikilvægari í starfsumhverfi sem tekur sífellt hraðari breytingum.

Í lok námskeiðs ættu þátttakendur að:

  • Þekkja og skilja jákvæð og neikvæð áhrif streitu
  • Geta nýtt streituna til góðs
  • Geta sett heilbrigð mörk
  • Geta átt í skýrum og skilvirkum samskiptum
  • Vera betur til staðar í hverju andartaki
  • Verið í tengslum við eigið innsæi

Fyrir hverja er námskeiðið

Námskeiðið er fyrir alla sem lifa og starfa með öðru fólki og vilja auka færni í starfi með minni streitu, meiri seiglu og betri samskiptum.
Fyrir sjálfstætt starfandi eða hvers konar stjórnendur með mannaforráð eða teymisstjóra.

Skipulagið

Námið er 8 klst og er kennt í tveimur 4 klst lotum. 

Hagnýtar upplýsingar

Innifalið í verði eru öll námskeiðsgögn og léttar veitingar á námskeiðsdegi.
Flest stéttarfélög niðurgreiða hluta námskeiðsgjalda fyrir sína félagsmenn. 

Verð

73.000 kr

Verkefnastjóri

Linda Vilhjálmsdóttir

lindav@ru.is 

599 6341

Leiðbeinendur

Gyða Dröfn Tryggvadóttir);

Gyða Dröfn Tryggvadóttir

Lýðheilsufræðingur EMPH

Kristín  Sigurðardóttir);

Kristín Sigurðardóttir

Slysa- og bráðalæknir

Deila námskeiði:

Go to Top