
Styttri námskeið
Power BI - skýrslur og mælaborð
Námskeið um framsetningu og dreifingu gagna með skýrslum, mælaborðum og smáforritum í Power BI.
Staðnám
Stutt lýsing
Námskeið um framsetningu og dreifingu gagna með skýrslum, mælaborðum og smáforritum í Power BI.
Um námskeiðið
Á námskeiðinu verður farið yfir framsetningu, notkun og dreifingu gagna með skýrslum og mælaborðum í Power BI. Auk þess verður farið yfir fyrirspurnir á mannamáli (e. natural language queries), útfærslu aðgangsstýringa, einfalda gerfigreind sem byggð er inn í Power BI og ýmislegt fleira
Fjallað um þá möguleika sem Power BI Desktop býður upp á, ásamt skýjaþjónustunni Power BI Service, til að hanna og dreifa markvissum og skýrum gagnagreiningum og skýrslum.
Meðal þess sem er kennt:
- Notkun og virkni skýrslna og þá sérstaklega gagnvirkni gagnastýringa og tengingar á milli skýrslna.
- Skýrsluhönnun og gagnabirting - hvað virkar og hvað ber að varast?
- Að tengjast einföldum gagnalindum með Power BI Desktop og birta í skýrslum.
- Útfærsla á aðgangsstýringum og notkun Power BI Service til að dreifa greiningarskýrslum.
- Staðlaðar gagnasýnir (e. visuals) sem fylgja með Power BI og aðfengnar gagnasýnir sem boðið er upp á til að útvíkka möguleika forritsins (e. custom visuals).
- Birting landfræðigagna og þá möguleika sem Power BI bíður upp á, bæði með stöðluðum gagnasýnum og aðfengnum gagnasýnum.
- Möguleikar gervigreindarinnar sem er innbyggð í Power BI til að flokka gögn og finna mynstur í gögnunum sem erfitt er að koma auga á.
- Greining gagna á mannamáli (e. natural language queries) og hvernig best er að haga fyrirspurnum til að fá réttar niðurstöður.
- Leiðir til að auðvelda aðgengi að upplýsingum með „fyrirspurnum á mannamáli“.
Fyrir hverja er námskeiðið
Námskeiðið nýtist öllum þeim sem vilja setja fram gögn með myndrænum hætti og nútímalegum aðferðum.
Skipulagið
Námskeiðið verður kennt í staðarnámi í Opna háskólanum:
- Fimmtudaginn 21.september 2023 kl. 09:00-15:00
Vinsamlega athugið að dagsetningar eru birtar með fyrirvara um að lágmarksþátttaka náist á námskeiðið.
Hagnýtar upplýsingar
Þátttakendur þurfa að vinna á sinni eigin PC tölvu. Tölvan þarf að vera með Windows stýrikerfi og nýjustu útgáfu Power BI Desktop uppsetta.
Flest stéttarfélög niðurgreiða hluta námskeiðsgjalda fyrir sína félagsmenn.
Verð
55.000 kr.