Verðbréfaviðskipti II
Hluti II - Viðskiptafræði
Undirbúningur fyrir próf í verðbréfaviðskiptum
-
Næsta námskeið
6. janúar 2021
-
Staða
Skráning hafin
-
Lengd
Fjarnám
-
Verð
180.000 kr. Prófgjöld ekki innifalin

Verkefnastjóri
Um námið
Sérfræðingar og stjórnendur sem hafa umsjón með daglegri starfsemi í tengslum við viðskipti með fjármálagerninga verða lögum samkvæmt að hafa staðist próf í verðbréfaviðskiptum. Sama á við um einkaumboðsmenn, framkvæmdastjóra rekstrarfélags, sjóðsstjóra og aðila sem sinna eignastýringu verðbréfasafna lífeyrissjóðs. Prófið nýtist einnig öðrum þeim sem starfa á fjármálamarkaði. Þetta þýðir að þessir aðilar þurfa að kynna sér grundvallarþætti sem varða fjármálamarkaðinn á sviði lögfræði og viðskiptafræði.
Meðal þess sem kennt er:
- Verðbréf, afleiður og gjaldeyrir,
- Fjárfestingarferli,
- Viðskiptahættir,
- Aðrar greinar á sviði viðskiptafræði að því marki sem þær skipta máli við umsjón með daglegri starfsemi í tengslum við viðskipti með fjármálagerninga
skattaleg atriði
þjóðhagfræði
Þetta námskeið er eitt af tveimur námskeiðum sem eru í boði við Opna háskólann í HR sem búa þátttakendur undir próf í verðbréfaviðskiptum.
Önnur undirbúningsnámskeið
Próf í verðbréfaviðskiptum
Opni háskólinn í HR heldur prófin og sér um skráningu í þau og utanumhald fyrir hönd fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Prófin eru haldin í það minnsta einu sinni á ári. Öllum er heimilt að skrá sig til verðbréfaviðskiptaprófs.
Athygli er vakin á því að nýtt fyrirkomulag prófs í verðbréfaviðskiptum mun ganga í gildi í október 2020. Sjá nánar á Vefsíðu Prófnefndar verðbréfaviðskipta
Vinsamlega athugið að sérstakt gjald er greitt fyrir próftöku sem er ekki innifalið í námskeiðsgjaldi fyrir undirbúningsnámskeiðið.
Dagsetningar og fleiri hagnýtar upplýsingar má nálgast á upplýsingasíðu um próf í verðbréfaviðskiptum:
Kennarar í Verðbréfaviðskiptum hluta II
- Jóhann Viðar Ívarsson, IFS greining
- Halldór Kári Sigurðarson
- Loftur Ólafsson, sjóðsstjóri hjá Birtu lífeyrissjóði
- Páll Ammendrup Ólafsson, TM
- Sigurður Erlingsson, ráðgjafi og fv. forstjóri Íbúðarlánasjóðs.
Sjá skipulag náms 2020
*Athugið að kennsluáætlun er birt með fyrirvara um breytingar.
Námskeiðið er byggt upp sem fjarnám með staðarlotum.
Staðarlotur í HR eru á eftirfarandi dögum:
- 15. febrúar 2021 kl. 16.00 - 18.00
- 17. febrúar 2021 kl. 16.00 - 18.00
- 22. febrúar 2021 kl. 16.00 - 18.00
- 24. febrúar 2021 kl. 16.00 - 18.00
- 1. mars 2021 kl. 16.00 - 20.00
- 2. mars 2021 kl. 16.00 - 20.00
- 3. mars 2021 kl. 16.00 - 20.00
Hagnýtar upplýsingar
- Innifalið í verði eru námskeiðsgögn.
- Prófgjöld eru ekki innifalin í námskeiðsgjaldi.
Flest stéttarfélög niðurgreiða hluta námskeiðsgjalda fyrir sína félagsmenn. Opni háskólinn hvetur þig til að kynna þér möguleikana.