
Stafræn námskeið
Fjármálalæsi - Fjármál heimilisins
Fjármálalæsi stuðlar að bættri ákvarðanatöku í fjármálum með áherslu á sparnað og fyrirhyggju. Þetta námskeið snýst um að þátttakendur öðlist yfirsýn yfir tekjur og gjöld til að auðvelda þeim að ná markmiðum sínum og uppfylla drauma.
Stafrænt nám
Stutt lýsing
Fjármálalæsi stuðlar að bættri ákvarðanatöku í fjármálum með áherslu á sparnað og fyrirhyggju. Þetta námskeið snýst um að þátttakendur öðlist yfirsýn yfir tekjur og gjöld til að auðvelda þeim að ná markmiðum sínum og uppfylla drauma.
Um námskeiðið
Á þessu stafræna námskeiði um fjármál heimilsins er unnið með viðfangsefni sem hafa áhrif á heimilisbókhaldið út frá áhuga og þörfum hvers og eins.
Á námskeiðinu segja sérfræðingar frá og útskýra
- Heimilisbókhald
- Launaseðil og skatta
- Skatthlufall og skattstofn
- Lífeyrissjóði
- Tryggingar
- Verðbólgu
Í hverjum kafla námskeiðsins segja sérfræðingar frá þeim lykilatriðum sem þarft er að kunna. Verkefni og æfingar tengdar hverju atriði eru síðan lagðar fyrir til að tryggja skilning á viðfangsefninu
Sérfræðingar á námskeiðinu koma frá lífeyrissjóðum, stéttarfélögum og Umboðsmanni skuldara. Þeir miðla af þekkingu sinni á tryggingum, verðbólgu og verðtryggingu.
Fyrir hverja er námskeiðið
Opni háskólinn í HR og Fjármálavit unnu saman að gerð námskeiðsins sem er öllum opið. Markmiðið með námskeiðinu er að þátttakendur auki fjármálalæsi sitt og geti þannig tekið upplýstari ákvarðanir í fjármálum, með áherslu á sparnað og fyrirhyggju.
Námskeiðið er eitt af þremur um Fjármálalæsi, en þau eru
- Fjármál heimilisins
- Sparnaður og fjárfestingar
- Lán og lánshæfi
Námskeiðin eru fyrir þau sem vilja auka skilning sinn á þessum viðfangsefnum. Þeim er ætlað að byggja upp þekkingu þátttakenda á þeim viðfangsefnum sem þeir þurfa helst að styrkja þekkingu sína í.
Hægt er að kaupa hvert námskeið stakt eða kaupa þau saman í braut.
Skipulagið
Námskeiðið er á stafrænu formi sem gerir þátttakendum kleift að fara yfir efnið á þeim tíma sem hentar þeim.
Það er Kristján Arnarsson sem tekur á móti þátttakendum, segir frá skipulaginu og leiðir inn sérfræðingana sem segja frá og auka skilning okkar á ólíkum liðum í fjármálum heimila.
Efni námskeiðsins er aðgengilegt í gegnum kennslukerfi Opna háskólans í HR.
Hagnýtar upplýsingar
Flest stéttarfélög niðurgreiða hluta námskeiðsgjalda fyrir sína félagsmenn.
Átt þú rétt á styrk til að sækja nám eða námskeið?
Kannaðu málið