
Stafræn námskeið
Fjármál heimila og einstaklinga
Í fyrsta hluta þessa stafræna námskeiðs um fjármál heimila og einstaklinga er unnið með viðfangsefni sem hafa áhrif á heimilisbókhaldið út frá áhuga og þörfum hvers og eins.
Í öðrum hluta beinist athyglin að því að að spara og fjárfesta. Áhugi og löngun til þess kann að vera persónubundin og ástæðan kannski sú, við fyrstu sýn, að hvoru tveggja kann að virðast fjarlægt viðfangsefni. Þegar betur er að gáð geta sparnaður og fjárfestingar verið hversdagslegar og fyrirhafnarlausar ákvarðanir.
Í þriðja hluta er fókusinn á lán og lánshæfi en lán geta aukið lífsgæði og gert fólki kleift að gera og framkvæma stærri verkefni í lífinu t.a.m. að eignast þak yfir höfuðið.
Stafrænt nám
Stutt lýsing
Í fyrsta hluta þessa stafræna námskeiðs um fjármál heimila og einstaklinga er unnið með viðfangsefni sem hafa áhrif á heimilisbókhaldið út frá áhuga og þörfum hvers og eins.
Í öðrum hluta beinist athyglin að því að að spara og fjárfesta. Áhugi og löngun til þess kann að vera persónubundin og ástæðan kannski sú, við fyrstu sýn, að hvoru tveggja kann að virðast fjarlægt viðfangsefni. Þegar betur er að gáð geta sparnaður og fjárfestingar verið hversdagslegar og fyrirhafnarlausar ákvarðanir.
Í þriðja hluta er fókusinn á lán og lánshæfi en lán geta aukið lífsgæði og gert fólki kleift að gera og framkvæma stærri verkefni í lífinu t.a.m. að eignast þak yfir höfuðið.
Um námskeiðið
Námslínan um fjármál heimila og einstaklinga einblínir á aukið fjármálalæsi. Ætla má að fjármálalæsi stuðli að bættri ákvarðanatöku í fjármálum. Námslínan snýst um það að þátttakendur öðlist yfirsýn yfir tekjur og gjöld, yfir sparnaðar og fjárfestingarleiðir og yfir lán og lánshæfi, til að auðvelda þeim að ná markmiðum sínum og uppfylla drauma.
Ákvarðanir okkar um sparnað og fjárfestingar geta verið meðal stærstu og kannski mikilvægustu fjármálalegu ákvarðana sem við tökum á lífsleiðinni. Fjármálalæsi með áherslu á sparnað og fjárfestingar stuðlar að bættri ákvarðanatöku í fjármálum. Á þessu námskeiði verður farið í grunnatriði og leitað skilnings á kjarnaþáttum þannig að sparnaður og fjárfestingar séu ekki framandi og fjarlæg viðfangsefni heldur frekar hefðbundinn partur af venjulegu lífi.
Lántaka er mjög almenn og flestir taka lán einhvern tíma á lífsleiðinni. Á þessu námskeiði um lántöku förum við forsendur fyrir lántöku, skoðum ýmsar hliðar lána og kynnum okkur sérstaklega lánshæfismat. Lántaka er skuldbinding og mikilvægt að taka eingöngu lán sem við höfum greiðslugetu til að standa við skuldbindinguna.
Námslínan um fjármál heimila og einstaklinga er í þremur hlutum
Í fyrsta hluta þessa stafræna námskeiðs um fjármál heimila og einstaklinga er unnið með viðfangsefni sem hafa áhrif á heimilisbókhaldið út frá áhuga og þörfum hvers og eins. Meginviðfangsefni eru:
- Heimilisbókhald
- Launaseðil og skatta
- Skatthlutfall og skattstofn
- Lífeyrissjóði
- Tryggingar
- Verðbólgu
Í öðrum hluta beinist athyglin að því að að spara og fjárfesta. Áhugi og löngun til þess kann að vera persónubundin og ástæðan kannski sú, við fyrstu sýn, að hvoru tveggja kann að virðast fjarlægt viðfangsefni. Þegar betur er að gáð geta sparnaður og fjárfestingar verið hversdagslegar og fyrirhafnarlausar ákvarðanir. Meginviðfangsefni eru:
- Bankareikningar og innistæður
- Fjárfestingakostir
Í þriðja hluta er fókusinn á lán og lánshæfi en lán geta aukið lífsgæði og gert fólki kleift að gera og framkvæma stærri verkefni í lífinu t.a.m. að eignast þak yfir höfuðið. Meginviðfangsefni eru:
- Lán
- Lánshæfismat
Í hverju námskeiði segja sérfræðingar frá þeim lykilatriðum sem þarft er að kunna. Verkefni og æfingar tengdar hverju atriði eru síðan lagðar fyrir til að tryggja skilning á viðfangsefninu.
Fyrir hverja er námskeiðið
Opni háskólinn í HR og Fjármálavit unnu saman að gerð námslínunnar sem er öllum opin. Markmiðið með námslínunni er að þátttakendur auki fjármálalæsi sitt og geti þannig tekið upplýstari ákvarðanir í fjármálum, með áherslu á sparnað og fyrirhyggju.
Námslínan samanstendur af þremur námskeiðum um fjármál heimila og einstaklinga, en þau eru
- Fjármál heimilisins
- Sparnaður og fjárfestingar
- Lán og lánshæfi
Námskeiðin eru fyrir þau sem vilja auka skilning sinn á þessum viðfangsefnum. Þeim er ætlað að byggja upp þekkingu þátttakenda á þeim viðfangsefnum sem þeir þurfa helst að styrkja þekkingu sína í.
Hægt er að kaupa hvert námskeið stakt eða kaupa þau saman í þessari námslínu sem heitir Fjármál heimila og einstaklinga.
Skipulagið
Námslínan er á stafrænu formi sem gerir þátttakendum kleyft að fara yfir efnið á þeim tíma sem hentar þeim.
Það er Kristján Arnarsson sem tekur á móti þátttakendum, segir frá skipulaginu og leiðir inn sérfræðingana sem segja frá og auka skilning okkar á ólíkum liðum í fjármálum heimila.
Efni námskeiðsins er aðgengilegt í gegnum kennslukerfi Opna háskólans í HR.
Hagnýtar upplýsingar
Flest stéttarfélög niðurgreiða hluta námskeiðsgjalda fyrir sína félagsmenn.
Átt þú rétt á styrk til að sækja nám eða námskeið?
Kannaðu málið