
Styttri námskeið
Excel - fjarnámskeið
Námskeið fyrir þá sem vilja auka færni sína enn frekar í Excel.
Fjarnám
Fjarnámskeið
Stutt lýsing
Námskeið fyrir þá sem vilja auka færni sína enn frekar í Excel.
Um námskeiðið
Athugið að námskeiðið er kennt í fjarnámi.
Pivot töflur og gröf - Mælaborð í Excel
Á þessu námskeiði er farið yfir möguleikana sem felast í greiningu tölulegra gagna í Pivot-töflum í Excel. Jafnframt læra nemendur um myndræna birtingu gagna og helstu tegundir grafa. Þessi þekking er nýtt til að búa til mælaborð í Excel.
Fyrri hlutinn snýst um að greina töluleg gögn í Pivot-töflum. Það verður farið ítarlega yfir þá möguleika sem þar eru til staðar.
Seinni hlutinn snýst um birtingu gagna á myndrænu formi og yfirferð yfir helstu tegundir grafa og dæmi um hvar og hvenær þau eiga við.
Námskeiðið er tilvalið fyrir þá sem notað hafa Excel en vilja bæta kunnáttuna. Eins hentar það þeim sem vilja ná meiru út úr OLAP/ BI-teningunum sínum.
Formúlur og trix
Einnig verður farið yfir ýmsar algengar aðgerðir sem auðvelda birtingu gagna, greiningar og útreikninga. Algeng trix í Excel s.s. frysta fyrirsagnir, sía og raða. Algeng föll og formúlur s.s. LOOKUP föll, samdráttarföll, dagsetningarföll, textaföll o.fl.
Fyrir hverja er námskeiðið
Námskeiðið er ætlað þeim sem þegar hafa stigið sín fyrstu skref í Excel.
Skipulagið
Námskeiðið er kennt í fjarnámi. Stutt kynning á námsefni verður með kennara á Teams kl. 09:00.
- Miðvikudaginn 5. október 2022
Námskeiðið byggist á myndbandsfyrirlestrum og verkefnavinnu sem nemendur vinna með aðstoð kennara. Myndböndin verða aðgengileg í a.m.k. mánuð eftir að námskeiðinu líkur og sama gildir um kennarann.
Notendur þurfa að nota eigin tölvur með Excel 2013 eða nýrri uppsettan á Windows stýrikerfi.
Vinsamlega athugið að dagsetningar eru birtar með fyrirvara um að lágmarksþátttaka náist á námskeiðið.
Hagnýtar upplýsingar
Flest stéttarfélög niðurgreiða hluta námskeiðsgjalda fyrir sína félagsmenn.
Átt þú rétt á styrk frá stéttarfélagi til að sækja nám eða námskeið?
Kannaðu málið.