
Lengri námslínur
APME verkefnastjórnun
Hagnýtt fjarnám í verkefnastjórnun sem hentar vel samhliða vinnu.
Fjarnám
Stutt lýsing
Hagnýtt fjarnám í verkefnastjórnun sem hentar vel samhliða vinnu.
Um námskeiðið
Með því að ljúka námslínu í APME verkefnastjórnun bæta þátttakendur skipulag og utanumhald verkefna, verða betur í stakk búnir til að taka erfiðar ákvarðanir, jafnvel undir álagi, og efla sig sem leiðtoga. Náminu lýkur með alþjóðlegri vottun.
Meðal þess sem kennt er:
- Helstu aðferðir til að taka bestu mögulegu ákvörðun.
- Þjónandi forysta og leiðtogafræði.
- Markmiðasetning í verkefnum og eftirlitskerfi.
- Uppbygging stefnumiðaðra gæðakerfa, aðfangastjórnun, birgðastýring og framleiðslubestun.
- Gerð arðsemilíkana fyrir fjárfestingaverkefni og áætlanir um fjárstreymi.
- Gerð verkáætlana og kostnaðarútreikninga.
- Tölfræði, notkun og greining líkana.
- Helstu tæki og tól eins og Excel, MS Project og MindManager
Alþjóðleg vottun
Í lok náms þreyta nemendur próf sem veitir þeim alþjóðlega IPMA vottun samkvæmt stigi D sem er staðfesting á þekkingu á sviði aðferðafræði verkefnastjórnunar.
Staðfesting á námsárangri
Við lok námsbrautar fá nemendur afhent prófskírteini og staðfestingu á námsárangri. Nemendur þurfa að hafa lokið öllum námskeiðum með lágmarkseinkunn.
Um verkefnastjórnun
Ávinningur af faglegri verkefnastjórnun er mikill en aðferðafræðin nýtur sífellt meiri vinsælda í atvinnulífinu. Auk þess að nýtast við utanumhald verkefna eru aðferðir verkefnastjórnunar notaðar í þróun vöru og þjónustu og breytingastjórnun.
Fyrir hverja er námskeiðið
Námið hentar þeim sem vilja nota alþjóðlega viðurkennda aðferðarfæði verkefnastjórnar í störfum sínum.
Skipulagið
Kennarar koma úr verkfræðideild Háskólans í Reykjavík eða eru sjálfstæðir ráðgjafar og sérfræðingar í stjórnun.
- APME verkefnastjórnun er fjarnám en staðarlotur eru haldnar í Reykjavík að jafnaði tvisvar sinnum fyrir hvert námskeið. Í staðarlotum er kennt kl. 9-15.
- Kennsla hefst í september og lýkur með alþjóðlegu vottunarprófi í maí.
- Fimm námskeið eru kennd í sex vikna lotum þar sem hverju námskeiði lýkur með prófi eða verkefni.
- Hljóðfyrirlestrar eru settir inn á sameiginlegt vefsvæði nemenda á þriðjudögum og fimmtudögum.
Kennsluáætlun:
Vinnuframlag
Á bakvið hvert námskeið liggja u.þ.b. 120-180 klukkustundir í vinnuframlagi. Við mat á vinnuframlagi er áætluð tímasókn í staðarlotum, undirbúningur fyrir heimavinnu, hlustun á hljóðglærur, próftaka, prófundirbúningur og verkefnavinna.
Hagnýtar upplýsingar
Innifalið í verði
- Námskeiðsgögn frá leiðbeinendum, það er, hljóðglærur og annað efni.
- Alþjóðlegt vottunarpróf á vegum IPMA (International Project Management Association).
- Léttur hádegisverður í staðarlotum.
Bækur sem stuðst við í náminu eru ekki innifaldar í verði námsins.
Flest stéttarfélög niðurgreiða hluta námskeiðsgjalda fyrir sína félagsmenn.
Átt þú rétt á styrk frá stéttarfélagi til að sækja nám eða námskeið?
Kannaðu málið.